Ég fékk tækifæri til að koma að nokkrum orðum um nýsköpun og uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs í Silfri Egils í dag.
Hér að neðan er upptaka af spjallinu.
P.S. Ég vona að RÚV sjái í gegnum fingur sér með að það er klárlega brot á höfundarrétti að setja efni frá þeim á YouTube. Það er bara ekki alveg nógu aðgengilegt að vísa á efni á þeirra eigin vef: Upptökur af Silfri dagsins á vef RÚV.






Þú stóðst þig glæsilega.
Bara alltof stutt! Við þurfum að heyra meira um nýsköpun og þau skilaboð sem þú varst með í dag. Þetta eru ákaflega mikilvægt skilaboð þessa dagana.
Flott. Held samt að einhyrningahorn séu málið…
Þetta var reyndar mjög gott hjá þér
d.
innihald / tíma = nýtt met !
Allir: Takk
Stefán: Já, ég flutti svo að segja sama boðskap á hálftíma á föstudaginn var og fannst það m.a.s. of stutt
Spurning um að texta þetta og setja inn með enskum fyrirsögnum, ekki slæmt að hafa svona revolutionary speach á youtube fyrir erlenda gesti og áhugafólk.
4 mínútur af frábæru efni, þetta er eins og lyfturæða ( http://tinyurl.com/2q4hxu ) Íslands fyrir erlenda fjárfesta.
“Tölvusérfræðingur” er ágætur titill við svona tækifæri. “Tölvukall” hefur ekki jafn mikið gravitas.
Bárður: Ég verð bara að taka þetta á ensku við tækifæri
Geir: Ég fékk minnstu að ráða um titilinn. Sennilega ágætt, hefði líklega valið “nörd” ef ég hefði fengið að ráða.
Heyr heyr, nú ertu í essinu þínu
Það kemur eitthvað flott út úr þessu öllu saman, er viss um það.
Kv. stígur
Flott viðtal.
Alveg sammála þessu með innihald/tími= nýtt met !!
Egill verður að gefa þér betri tíma í þættinu aftur fljótlega svo hægt sé að fara í saumana á þessu, t.d. nefna hvaða aðgerðir sé hægt að gera osfrv.
Áfram með kraftinn!!!
Frábært Hjalli. Ég var hættur að kunna að vera jákvæður. Þetta var spark í rassinn. Takk!
Frábært Hjálmar!
Þetta er rétti andinn og sanni andinn í þessu krepputali öllu.
Vonandi kemurðu bara fljótlega aftur í Silfrið og færð að tjá þig enn frekar.
Knús